Netverslun

X line Premium mán-mán

Lifestyle Camper X-Line Premium

Lifestyle Camper X-Line Premium er harðgert offroad leiguhýsi fyrir þá sem vilja komast út fyrir alfaraleiðir og upplifa Ísland á eigin forsendum. Hýsið er létt í drætti en mjög sterkt og hentar einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður – hvort sem ferðin liggur um hálendið, fjallvegi eða afskekkta staði.

Hýsið býður upp á þægilegt svefnpláss fyrir tvo inni í hýsinu og með topptjaldi geta 2–3 til viðbótar gist, þannig alls geta 4–5 ferðast saman.

X-Line Premium kemur fullbúið í leigu og er tilbúið í útileguna frá fyrstu stundu. Það er með öflugu Webasto hitakerfi, frábærri offroad fjöðrun og snjöllu útieldhúsi með vaski, krana og heitu og köldu vatni.

Auk þess fylgir allur helsti búnaður með – þannig þú þarft ekki hafa áhyggjur af neinu nema njóta ferðalagsins.


Helstu eiginleikar:

🏕️ Svefnpláss fyrir 2 inni í hýsinu
Topptjald með svefnplássi fyrir 2–3 til viðbótar
👨‍👩‍👧‍👦 Pláss fyrir alls 4–5 í ferðalaginu

🔥 Webasto hitakerfi

🛞 Offroad fjöðrun – öflug sjálfstæð fjöðrun með gormum og dempurum sem tryggir mýkri akstur og betra grip

🍳 Snjallt útieldhús með vaski, krana og eldunaraðstöðu
💧 50L vatnstankur með rafmagnsdælu
🚿 Heitt og kalt vatn

🍽️ Borðbúnaður fylgir – diskar, glös og hnífapör
🪑 Borð og stólar til útilegu
♨️ Gasgrill fylgir
🧯 Gaskútur fylgir

💡 Útileguljós og annar nytsamlegur búnaður


Tæknilegar upplýsingar:

📏 Heildarlengd: ca. 370 cm
📐 Breidd: ca. 195 cm
📏 Hæð: ca. 180 cm

⚖️ Eigin þyngd: ca. 550–650 kg
🚗 Heildarþyngd: allt 750–1000 kg

🛏️ Dýna: ca. 200 x 140 cm

💧 Vatnstankur: 50L
Rafmagn: 12V / 230V kerfi
🔌 Tengi fyrir landstraum

🛞 Undirvagn: galvaniseruð grind
🛞 Offroad fjöðrun – öflug sjálfstæð fjöðrun með gormum og dempurum sem tryggir mýkri akstur og betra grip

🧱 Yfirbygging: slitsterk og veðurþolin húðun


Fyrir hverja hentar X-Line Premium?

  • Þau sem vilja leigja harðgert offroad hýsi

  • Pör sem vilja komast út fyrir alfaraleiðir

  • Vinahópar eða litlar fjölskyldur (4–5 saman)

  • Ferðalangar sem vilja mæta nánast tilbúnir í ferðina

  • Þeir sem vilja meira frelsi og sveigjanleika í útivist

Bókaðu hér

Hýsi sótt: Á mánudegi eftir kl.15:00. Tímahólfi er úthlutað samdægurs.Hýsi skilað: Á sunnudegi fyrir kl. 18:00

Trygging

Sjálfsábyrgð felld niður

Placeholder
Trygging 12.900 kr.

Þrif

Þrif á vagni eftir notkun. Athugið að ef hýsunum er ekki skilað hreinum er þetta gjald rukkað 

Placeholder
Þrif 13.900 kr.
Vöruverð: 165.000 kr.
Heildarvalkostir:
Heildarupphæð pöntunar:
button arrow