Um okkur
Leiguhysi ehf. er íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í leigu og sölu á hjólhýsum og öðrum eftirvögnum að gerðinni Niewiadow. Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á hágæða hýsi á hagstæðu verði sem henta íslenskum aðstæðum – hvort sem þú ert að skipuleggja helgarferð, sumarfrí eða bara ævintýri út í óvissuna.
Við trúum því að ferðalagið verði best þegar það er einfalt, þægilegt og á þínum eigin forsendum. Þess vegna höfum við valið vandaða vagna, lagt áherslu á góða leiðsögn og tryggt að þjónustan sé bæði persónuleg og áreiðanleg.

Leiga og sala á léttum hjólhýsum sem allir mega draga og því engin þörf á meiraprófi.

Óskar Steindórsson
Eigandi og framkvæmdastjóri Leiguhýsi.is
Óskar er menntaður Bráðatæknir og Slökkviliðsmaður og hefur starfað sem slíkur á höfuðborgarsvæðinu s.l. 22 ár. Hann er einnig með Alþjóðlega IMPA vottun sem Verkefnastjóri. Leiguhýsi.is er verkefni sem hann hóf í byrjun árs 2025 og hefur þróast frá hugmynd í fyrirtæki með umboð frá stórum erlendum framleiðanda eftirvagna á stuttum tíma.
Hugmyndin að fyrirtækinu fæddist út frá ástríðu hans fyrir útiveru með fjölskyldunni, Íslenskri náttúru og útilegum. Margir íslendingar gera sér ekki grein fyrir þeim takmörkunum sem eru á þyngd eftirvagna og aka um vegi Íslands með of þung hýsi án þess að hafa BE-ökuréttindi, hið svokallaða kerrupróf. Því fylgir kostnaður og amk 4 ökutímar sem er óþarfi að leggja á sig til að leigja sér hýsi og skoða okkar undurfagra Ísland eina eða tvær vikur á ári.
Leiguhýsi.is býður íslendingum nú upp á hjólhýsi sem eru undir 750kg að leyfilegri heildarþyngd og geta því allir sem hafa venjulegt bílpróf skellt sér áhyggjulaust í útileguna og gert það á hagstæðu verði.
Lífið er stutt, það á að vera gaman og því þarf að grípa hvert tækifæri til að skapa góðar minningar.