Netverslun

N-Cross 3 mið-mið

N-Cross 3 er frábært hýsi fyrir fjölskylduna. Hann býður upp á svefnpláss fyrir allt að 3 manns, rúmgott eldhús, breytilegan borðkrók, salerni með sturtu og þægilegt skipulag sem hentar jafnt til stuttra ferða og lengri sumarleyfa.

Þetta er millistærðin í flotanum – auðveldur í notkun og hannaður með léttum, nútímalegum efnum sem tryggja jafnvægi milli rýmis og dráttargetu. Fullkominn fyrir þá sem vilja ferðast án þess að fórna þægindum.


Helstu eiginleikar:

  • 🛏️ Svefnpláss fyrir 3 manns –  Hjónarúm og einstaklingsrúm
  • 🍽️ Rúmgott eldhús – gaseldavél með tveimur hellum, 57L ísskápur, airfryer, kaffivél, vaskur og góðar hirslur
  • 🥩 Gasgrill á vagni – stórt ferðagasgrill fylgir með enda engin útilega án grillmats
  • 💡 Rafmagnskerfi – 12V og 220V tenging, LED-lýsing og tenglar
  • 🎛️ Stjórnborð – Stýrðu lýsingu og öðru á einum snertiskjá
  • 🪟 Gluggar með gardínum, neti og myrkvun – sveigjanleg loftræsting og næði
  • 📦 Nóg geymslupláss – bæði undir rúmum og í skápum
  • 🌡️ Truma hitakerfi – hitar upp hýsið eftir földum leiðslum og heldur því hitastigi sem valið er á stýriborðinu
  • 👣 Hiti í gólfi – skildu ullarsokkana eftir heima
  • 🛁 Baðrými með vaski, salerni og heitri sturtu – öll nútíma þægindi til staðar

Tæknilegar upplýsingar:

  • Heildarlengd: ca. 5,6 metrar með beisli.
  • Breidd: ca. 2,23 metrar
  • Heildarhæð: ca. 2,53 metrar
  • Innanmál: 388 x 205 x 185
  • Leyfileg heildarþyngd: 950-1000 kg
  • Svefnpláss: 3 einstaklingar – einstaklings- og hjónarúm (bæði breytilegir borðkrókar)
  • Stærð hjónarúms; 143 x 205
  • Eldunaraðstaða: Tveggja hellna gaseldavél, vaskur, kæliskápur
  • Vatnskerfi: Vatnstankur með dælu fyrir kalt vatn
  • Truma Therme vatnshitari – Heitt vatn úr öllum blöndunartækjum með einum takka
  • Rafmagn: 12V kerfi og 220V tenging
  • Aukahlutir: Fortjald með öllu, útileguhúsgögn, allur borðbúnaður fylgir
  • Öryggi: Reykskynjari, gasskynjari og öryggisbúnaður samkvæmt reglum

Fyrir hverja hentar N-Cross 4?

  • Fjölskyldur eða pör sem vilja aukið rými og meiri þægindi
  • Ferðalanga sem ætla í lengri ferðir um landið
  • Þá sem meta gott skipulag og svefnpláss fyrir börn og fullorðna

👉 Bókaðu þinn í tíma – vinsælt val fyrir fjölskyldusumar og langt frí!

Bókaðu hér

Hýsi sótt: Á miðvikudegi eftir kl.14Hýsi skilað: Á þriðjudegi fyrir kl.18

Trygging

Sjálfsábyrgð felld niður

Placeholder
Trygging 12.900 kr.

Þrif

Þrif á vagni eftir notkun. Athugið að ef hýsunum er ekki skilað hreinum er þetta gjald rukkað 

Placeholder
Þrif 13.900 kr.
Vöruverð: 160.000 kr.
Heildarvalkostir:
Heildarupphæð pöntunar:
button arrow